Bjarni ben er stríðnispúki: illugi var í áfalli og gafst upp - „ég snarstoppaði, skelfingu lostinn“

Illugi Gunnarsson fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins vera stríðnispúka, sem hafi mikið fyrir því að hrekkja vini sína. Í nærmynd af Bjarna sem birt er á vef Fréttablaðsins er rætt við Illuga en hann og Bjarni eru miklir mátar. Þar er birt saga af því þegar Bjarni náði að koma Illuga í klandur. Illugi segir:

 „Eitt sinn skömmu fyrir jól, þegar þingið var í sinni hefðbundnu jólapanik, þá sá Bjarni á eftir mér hlaupa í hádeginu út úr þinghúsinu, greinilega í miklum flýti. Hann vissi sem var að Brynhildur kona mín var á leið vestur seinna um daginn og að ég var með verkefnalista sem þurfti að klára. Bjarni sá sér leik á borði og ákvað að hrekkja eilítið vin sinn. Þetta var í þá tíð þegar hægt var að senda nafnlaus sms í gegnum heimasíður. Þar sem ég er á hlaupunum fæ ég sms úr einni slíkri síðu:

„Hlökkum til að sjá þig í pallborðinu, ræðurnar byrja kl.12 en þið byrjið kl 12.30. kær kv. Eva.“

Illugi segir: Ég snarstoppaði, skelfingu lostinn.“

Fyrsta hugsun Illuga var hvernig hann ætti að útskýra fyrir konu sinni að hann kæmist ekki með í verslunarleiðangurinn. En vandamálið var stærra. Illuga hafði ekki hugmynd um neina ráðstefnu, hvar hún væri eða hvað ætti sér stað þar. Fljótlega kom nýtt sms.

Reiknum með 300 manns og fjölmiðlarnir eru mættir. Hlökkum til að sjá þig, Eva.“

Illugi segir: „Hér var mér farið að líða verulega illa. Ég stóð úti á götu og leitaði eins og óður maður að tölvupóstum eða smsum frá einhverri Evu sem ég gat ekki með nokkru móti munað að hafa átt nokkru sinni samskipti við. Þá kom næsta sms:

Ekki gleyma að gestir í pallborðinu eiga að vera með lokaorðið, bara 2 til 3 mín. Kv Eva.“

Á þessari stundu flugu ótal hugsanir í gegnum huga Illuga. Ráðstefnan hlaut að vera mikilvæg fyrst 300 gestir og fjölmiðlar yrðu á svæðinu, en nú stefndi í að fulltrúi Sjálfstæðisflokksins yrði fjarverandi. Það yrði hneyksli. Þá komu næstu skilaboð:

Ef þú ert með einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband, Eva.

„Ekki hika við að hafa samband!!!“ segir Illugi og bætir við: „Þarna gafst ég upp, vissi að ég væri orðinn og seinn og kemur þá síðasta sms-ið:

Bjarni hafði samband, hann sagðist koma í staðinn fyrir þig, besta mál, heyrumst. Kær kv. Eva.“

Illugi segir að lokum: „Það sem ég var ánægður með hann Bjarna Benediktsson að bjarga þessu svona fyrir mig. Þegar ég kom svo á þingflokksfund klukkan þrjú sama dag byrjaði ég á því að segja þessa sögu, hvernig Bjarni hefði bjargað mér. Áður en ég vissi af lá allur þingflokkurinn í hláturskasti. Bjarni hafði auðvitað orðið fyrri til að segja söguna og ég hljóp því narrið allan hringinn.“

Hér má lesa nærmyndina í heild sinni.