Katrín Jakobsdóttir, er gestur í Þjóðbraut í kvöld, þar sem hún meðal annars upplýsir að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi aldrei boðið sér til viðræðna um stjórnarmyndun.
Þau töluðu saman í síma þar sem Katrín sagði Bjarna að langt væri á milli flokkanna. Bjarni lét þar við sitja.
Katrín segir að hefði Bjarni boðið sér formlega til viðræðna hefði hún að sjálfsögðu mætt til viðræðna. Annað hefði ekki komið til greina.
-sme
Tekið skal fram að viðtalið við Katrínu var myndritað áður en Bjarni gafst upp. Viðtalið er um margt annað en tilraunir Bjarna.