Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, telur ekki líklegt að ríkið muni taka þátt í að niðurgreiða laseraðgerðir á augum í bráð. Bjarni var spurður um þetta á streymisfundi í hádeginu í dag. Svar Bjarna var þó nokkuð persónulegt, en sjálfur las hann spurninguna með aðstoð gleraugna.
„Nú hef ég sjálfur farið í laseraðgerð. Það dugði mér vel í nokkur ár. Síðan kom að því að ég þurfti að horfast í augu við lesgleraugnavandann. Ég verð nú að segja það að ríkið hefur nú bara hagað stuðningi við slíkar aðgerðir í samræmi við eðli máls.“
Notar hann því nú gleraugu til að lesa.
„Það er til svona lausn…,“ sagði Bjarni og hélt á gleraugunum sínum. „…sem að fólk getur gripið til. Ég held að ríkið sé ekki að fara að gera mikið meira,“ sagði hann og hló.