Bjarni: 168 milljarðar að gera lágmarkslaun skattfrjáls – Gunnar Smári: „Frábært, gerum þetta“

Það myndi kosta ríkissjóð 168,3 milljarða króna á ári að gera lágmarkslaun í landinu skattfrjáls. Er þá miðað við 350 þúsund króna mánaðarlaun. Hækkun fjármagnstekjuskatts upp í 25 prósent myndi aðeins auka tekjur ríkissjóðs um 2,9 milljarða króna.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, þingmanni Vinstri Grænna.

Samkvæmt Bjarna þyrfti persónuafsláttur að vera 78 þúsund krónur á mánuði til þess að mánaðartekjur að 250 þúsund krónum yrðu skattfrjálsar. Það myndi kosta ríkissjóð um 88 milljarða króna. Ef mánaðartekjur að 350 þúsund króna launum yrðu skattfrjálsar þá myndi það kosta 168,3 milljarða, eða 85 prósentum af tekjuskattsstofninum.

Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaforingi, segir að þetta sé alveg hægt. „Frábært, gerum þetta. Og hækkum skattprósentuna þannig að fólk með millitekjur og yfir sé jafnsett. Þar finnast 84 milljarðar,“ segir hann á Facebook. „Hækkum svo fjármagnstekjuskatt upp að sömu skattprósentu og launafólk borgar. Þar ættu að finnast um 23 milljarðar, ef marka má það sem segir um auknar tekjur af hækkun fjármagnstekjuskatts.“

Svo vill Gunnar Smári setja á auðlegðarskatt á hreina eign umfram 250 milljarða, telur hann að það gæti gefið 40 milljarða. „Þá er eftir að hækka veiðigjöld upp í 30 milljarða eða svo. Þá eru eftir 9 milljarða sem við getum notað til frekari skattalækkana á almenning.

Hver vill þetta ekki? Skattfrjálsar lægstu tekjur á móti eðlilegum fjármagnstekjuskatti, auðlegðarskatti og veiðigjöldum. Þetta er no brainer.“