Bjarnheiður vill vernda börnin og gagnrýnir flutning auðar: „túlkunin er þannig að það sé eðlilegt ástand að vera í vímu“

„Lagið sem ég sá hann syngja heitir „Freðinn“ og er víst hans stærsti „hittari“. Ég tek það fram að ég þekki ekkert til tónlistarmannsins eða hans sögu en það var eitthvað sem argaði innan í mér við að hlusta á textann sem hann söng. Þar er hann sem sagt „freðinn“ eða í dópvímu og túlkunin er þannig að það sé bara mjög eðlilegt ástand að vera í vímu. Fyrir börn, sem ég er viss um að hlusta á þennan tónlistarmann (13 ára sonur minn þekkti hann), gæti þetta virkað sem eftirsóknarvert, skemmtilegt og eðlilegt. Upphafning vímuástands.“

Þetta segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni um liðna helgi. Tónlistarmaðurinn sem þarna um ræðir er Auðunn Lúthersson, sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Auður. Hann hefur notið mikill vinsælda undanfarið og hlaut til að mynda átta tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna og vann þar tvö verðlaun fyrir plötu sína Afsakanir.

Auður spilaði á Tónaflóði Rásar 2 á Menningarnótt og sá Bjarnheiður hann flytja eitt af sínum vinsælustu lögum, Freðinn, sem henni þykir hampa vímuástandi. Bjarnheiður vísar í textabrot úr laginu, sem er á þessa leið:

„Þegar ég er freðinn (þegar ég er freðinn, þegar ég er freðinn)
Hugsa til þín svona í miðri vímu (í miðri vímu, í miðri vímu)
Ég hugsa alltaf um þig þegar ég er freðinn (þegar ég er freðinn, þegar ég er freðinn)
Hugsa til þín svona í miðri vímu (í miðri vímu, í miðri vímu).“

Hún segir að því miður hafi alltof margir kynnst afleiðingum þess að vera reglulega „freðnir“ og þykir óþarfi að fara nánar út í þá sálma. „Ég er mér líka fullmeðvituð um rit- og tjáningarfrelsi og ég veit vel að börn og unglingar hafa greiðan aðgang að hverju sem er á netinu. En í gær [á laugardag] var þessi eflaust ágæti listamaður að syngja snemma kvölds á fjölskylduskemmtun, sem var sjónvarpað beint á RÚV, sem óneitanlega gefur atriðinu vægi og „normaliserar“ það á vissan hátt.“

„Hvernig á að útskýra fyrir börnum að boðskapurinn sem þessi marglofaði og vinsæli listamaður flytur sé vondur? Hvernig samræmist þetta forvarnarstarfi? Eða finnst fólki þetta almennt bara allt í lagi?“ veltir Bjarnheiður fyrir sér að lokum.

Skulum ekkert vera að banna neitt

Halldór Halldórsson, Dóri DNA, kemur Auði til varnar á Twitter-síðu sinni. Hann segir:

„Það að þessi kona [Bjarnheiður] sé reið er hennar réttur. Það að Auðunn fái að flytja tónlist sína án ritskoðunar er mikilvægt. Fagna svona umræðu. En við skulum ekkert vera að banna neitt.“

Árna Vilhjálmssyni söngvara þykir gagnrýni Bjarnheiðar og umræðan sem hefur sprottið í kringum hana undarleg. Hann segir á Twitter-síðu sinni: „Þingmenn blekaðir á vinnutíma að úthúða konum. Engar afleiðingar. Heilbrigður ungur drengur (Auður) flytur frumsamið lag á menningarnótt. UPP MEÐ HEYGAFFLANA!!!“

Kjartan Atli Kjartansson, fjölmiðlamaður á Stöð 2, leggur sömuleiðis orð í belg á Twitter-síðu sinni og segir einfaldlega: „Legalize it.“