Bjarney fyrsti kvenkyns yfirlögregluþjónninn

 

Bjarney S. Annels­dótt­ir hef­ur verið skipuð yf­ir­lög­regluþjónn hjá embætti lög­reglu­stjór­ans á Suður­nesj­um. Þar með er hún fyrsta kon­an til þess að gegna embætti yf­ir­lög­regluþjóns á Íslandi. Bjarney mun leiða rann­sókn­ar­deild og al­menna deild embætt­is lög­reglu­stjór­ans á Suður­nesj­um.

Frá þessu er greint í fréttatil­kynn­ingu frá lög­reglu­stjór­an­um á Suður­nesj­um.

Í tilkynningunni segir að Bjarney hafi fyrst hafið störf sem af­leys­ing­armaður í lög­regl­unni á Keflavík­ur­flug­velli árið 1999. Hún út­skrifaðist úr Lög­reglu­skóla rík­is­ins árið 2003.

Bjarney starfaði hjá lög­regl­unni í Hafnar­f­irði árið 2004 og í í Kefla­vík árið 2005 áður en hún hóf störf við kennslu í Lög­reglu­skól­an­um árið 2007. Þar starfaði hún til árs­ins 2013 þegar hún varð aðalvarðstjóri hjá lög­regl­unni á Suður­nesj­um. Frá ára­mót­um 2017 og 2018 var Bjarney sett­ur aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á Suður­nesj­um.

Hún var síðan skipuð yf­ir­lög­regluþjónn lögreglunnar á Suðurnesjum frá 15. apríl á þessu ári.

Bjarney hef­ur víðtæka menntun að baki, en auk þess að hafa útskrifast úr Lögregluskóla ríkisins árið 2003 lauk hún rekstr­ar­fræði frá Bif­röst árið 2002, viðskipta­fræði BSc frá Bif­röst árið 2006 og M.ed gráðu í íþrótta- og heilsu­fræði frá HÍ árið 2016. Þá hef­ur hún lokið fjölda starfstengdra nám­skeiða.