Stuttmynd Loga Sigursveinssonar Bjarnarblús bar sigur úr býtum á Northern Wave Film Festival sem að þessu sinni var haldin í Frystiklefanum að Rifi.
Myndin fjallar um mann sem í afar óvenjulegum kringustæðum fær tækifæri til að horfast í augu við sjálfan sig.
Myndina má sjá hér á vef Kvennablaðsins
Northern Wave er alþjóðleg stuttmyndahátíð þar sem úrval alþjóðlegra stuttmynda og íslenskra tónlistarmyndbanda er sýnt auk annar viðburða.
Markmið hátíðarinnar er einnig að koma af stað tengslaneti meðal íslensks og erlends kvikmyndagerðafólks sem að er að byrja að koma sér áfram og þeirra sem meiri reynslu hafa. Hátíðin er unnin af hugsjón þar sem lögð er áhersla á listrænar sýn eftir kvikmyndagerðarfólk sem að þorir að taka áhættur.
Hátíðinni sýnir öll form stuttmynda (teiknimyndir, hreyfimyndir, heimildarmyndir, leiknar myndir), vidjólist og tónlistarmyndbönd en engin alþjóðleg kvikmyndahátíð á Íslandi hefur hleypt að tónlistarmynböndum hingað til. Með tónlistarmyndböndunum verða hljómsveitir hvattar til að koma og styðja við bakið á sínu myndbandi með tónleikum á meðan á hátíðinni stendur. Þetta er gert til þess að tónlistarfólk komist í tengls við kvikmyndagerðamenn og öfugt uppá framtíðarsamstarf.
Hugmyndafræðin á bakvið nafnið og hátíðina í heild sinni er byggð á Nýbylgjustefnunni (Nouvelle Vague eða New Wave). Líkt og í Nýbylgjustefnunni er áhersla lögð á kvikmyndir sem listform en hátíðin leggur áherslu að sýna allt sem stuttmyndaformið hefur upp á að bjóða.