Bjargarlaus og rökþrota – gæti orðið skrímsli sem eyðir sjálfu sér

Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag gerir Davíð Oddsson, ritstjóri blaðsins, nýlega færslu Páls Vilhjálmssonar á bloggsíðu sinni að umfjöllunarefni. Þar fjallar Páll um þriðja orkupakkann.

„Páll Vilhjálmsson bendir á að áköfustu talsmenn viðurkenni óvissuna um orkupakkann sinn. Fjöldahreyfing vill stöðva innleiðingu pakkans, almennir sjálfstæðismenn andmæla stefnu forystunnar, þjóðin er á móti og fylgið hrynur af flokknum. „Óvissa“ sé vægt orð um pólitískar hamfarir,“ segir Davíð og grípur niður í færslu Páls:

„Móðurflokkurinn er í sömu stöðu og strax eftir hrun, bjargarlaus og rökþrota. Sjálfstæðisflokkurinn er við það að tapa forystuhlutverki sínu í íslenskum stjórnmálum. Himinn og haf er á milli ráðherra flokksins sem kalla orkupakkann þýðingarlaust smámál en er stórhættulegt valdaframsal á fullveldi þjóðarinnar í augum andstæðinga pakkans,“ segir Páll.

Páll segir forystu Sjálfstæðisflokksins einangraða í málinu. „Öll rök falla til Dýrafjarðar og sá fjörður er í fullvalda Íslandi. Eftir það sem á undan er gengið yrði versta niðurstaða Sjálfstæðisflokksins að fá orkupakkann samþykktan. Á yfirborðinu liti samþykkt út eins og stórsigur. En þegar sæstrengsumræðan fer á fullt í kjölfarið mun opinberast að varnir Íslands eru stórum veikari, einmitt vegna orkupakkans.“

„Sjálfstæðisflokkur sem skipulega veikir fullveldi landsins er skrímsli sem eyðir sjálfu sér. Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur fáeina daga til að vakna og bregðast við áður en óbætanlegt tjón hlýst af. Annars verður ,,smámálið“, orkupakkinn, litla þúfan sem veltir fylgishlassi Sjálfstæðisflokksins og dreifir því um víðan völl,“ bætir Páll við.