Bjarg reisir 33 íbúðir á akranesi

Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa afráðið í samstarfi við Bjarg, íbúðafélag á vegum Alþýðusambands Íslands að reisa 33 íbúðir við Asparskóga á Akranesi, en það er í samræmi við stórsókn ASÍ í húsnæðismálum á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land. 

Með samkomulagi þessara aðila veitir Akraneskaupstaður vilyrði um úthlutun á lóðum að Asparskógum 12, 14 og 16 til íbúðafélagsins Bjargs þar sem reisa á leiguíbúðir og einnig mun Akraneskaupstaður veita stofnframlag til uppbyggingarinnar í samræmi við ákvæði laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. Stofnframlag Akraneskaupstaðar til uppbyggingar er 12% af stofnvirði og getur t.d. verið í formi gatnagerðargjalda og annarra opinberra gjalda sem kaupstaðurinn hefur forræði á. Akraneskaupstaður gerir það að skilyrði fyrir veitingu stofnframlags til verkefnisins að Akraneskaupstaður hafi að jafnaði ráðstöfunarrétt að 25% íbúða samkvæmt nánara samkomulagi milli aðila. Íbúðirnar sem hér um ræðir verða allar í útleigu og tekur leiguverð þeirra mið að tekjum leigutaka. Næsta skref verður að skipa sérstaka verkefnastjórn með fulltrúum frá Bjargi og Akraneskaupstað þar sem unnið verður sameiginlega að framgangi verkefnisins m.a. um fyrirkomulag húsa, skipulag, útlit o.s.frv.

„Með undirritun yfirlýsingarinnar er stór skref stigið í að mæta íbúum Akraness með fjölgun leiguíbúða en lítið framboð hefur verið af slíkum síðastliðin ár“, segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri. „Ég er fullur tilhlökkunar yfir verkefninu og hef mikla trú á því. Við erum hér að mæta fjölskyldum hér í bæ með nýjum leiguíbúðum á leiguverði sem tekur mið af tekjum heimilisins“, segir Sævar ennfremur.

Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs lýsti yfir ánægju sinni með undirritunina og er spenntur fyrir að hefja þetta metnaðarfulla verkefni á Akranesi. Björn lýsir yfir mikilli ánægju með samstarfið við fulltrúa Akraness og hversu hratt og örugglega ferlið hefur gengið fyrir sig.