Valdaránstilraun tyrkneska hersins um helgina hefur ýtt af stað atburðarrás sem erfitt er að greina hvert muni stefna en ljóst að friði í Evrópu er ógnað. Stjórnmálafræðingarnir, Ármann Snævarr og Sema Erla Serdar mæta á Hringbraut uppúr hálf tíu í kvöld. Sema er sem kunnugt er hálf tyrknesk að uppruna og eiginkona Ármanns er tyrknesk. Fjölskyldu og vinatengsl þeirra við land og þjóð er margvísleg og bæði eru stjórnmálafræðingar.
Þau segja að erfitt og undarlegt hafi verið að fylgjast með viðburðunum í Tyrklandi. Sema segir ljóst að það sé búið að ákveða hverjir stóðu að baki valdaránstilrauninni án þess að sannanir liggi fyrir því en gengið hratt og hreint til verks og sífellt fleiri handteknir. Ármann benti á að lítið tilefni væri fyrir bjartsýni ef litið er á að stjórnarandstaðan í landinu sé veik og ekki mikill valkostur, einnig að Erdogan forseti muni öðlast mikið fylgi núna í landinu. Sema benti á möguleikann á því að hann boði kosningar sem hann hefur unnið nokkrum sinnum áður, stundum með því að halda kosningar aftur, líki honum ekki niðurstaðan. Stjórnarskrárbreytingar eru honum ofarlega í huga þar sem hann vill færa stjórnskipan landsins frá þingræði til forsetaræðis.