Í nýjasta þátt Markaðstorgsins með Pétri Einarssyni kemur Jón Helgi Egilsson og ræðir hvernig Bitcoin tæknin gæti lækkað bankakostnað og vaxtakjör í landinu. Pétur heimsækir Ís- og kaffihús Örnu sem framleiðir og býður laktósafríar mjólkurvörur og hittir Örnu sjálfa. Egill Jóhannsson er spurður að því hvers vegna ekki fleiri rafmagnsbílar séu á Íslandi. Einnig er í þættinum samanburður á Búnaðarbankanum 2003 og sölu á Arion Banka í ár.