Nafn athafbamannsins og rithöfundarins Ólafs Jóhanns Ólafssonar hefur ítrekað verið misnotað í þeim vafasömu erindagjörðum að laða fólk að rafmyntinni Bitcoin, en Ólafur Jóhann er fráleitt fyrsta fórnarlambið í þessum efnum.
\"Þarna er verið að nota nafnið mitt í einhverja svikamyllu og það dregið inn til að reyna blekkja fólk,\" segir hann við ruv.is í dag og bætir við: \"Hvað mig varðar er þetta ekkert skemmtilegt en aðalmálið er að koma í veg fyrir að einhver bíti á agnið, að skúrkarnir nái að blekkja einhvern.“ Þetta segir Ólafur Jóhann Ólafsson, aðstoðarforstjóri Time Warner og rithöfundur, en nafn hans hefur verið notað í falsfréttum um hvernig sé hægt að græða umtalsverðar fjárhæðir á rafmyntinni Bitcoin.
Ólafur Jóhann er ekki fyrsti íslenski athafnamaðurinn sem lendir í svona Facebook-skúrkum. Nöfn Björgólfs Thor BJörgólfsson og CNN voru einnig nýtt í falsfréttir þar sem reynt var að fá fólk til að láta fé af hendi á síðu undir nafninu Bitcoin Code.
Ólafur Jóhann segir við vefinn að honum hafi verið bent á þetta í síðustu viku þegar hann fór að fá skeyti frá vinum og kunningjum á Íslandi. Þetta hafi fyrst verið á íslensku en svo verið snarað yfir á ensku og sett í myndrænan búning: \"Það hefur verið nostrað við þetta,“ segir Ólafur og er ekki skemmt.