Biskupinn vissi en gerði ekkert

Prestur í Reykjavíkurprófastsdæmi skýrði Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi Íslands, fyrir fjórum árum frá atviki milli sín og séra Ólafs Jóhanssonar, sóknarprests í Grensáskirkju. Sú vitneskja biskups varð hins vegar ekki tilefni til að hefja rannsókn á meintu kynferðisofbeldi klerksins.

Þetta kemur fram á forsíðu Fréttablaðsins í dag, en upplýsingarnar sýna mótsagnir í málflutningi kirkjuleiðtogans sem hefur sagt opinberlega að hann líði ekki kynferðisbrot á sinni vakt; biskup hljóti \"ávallt að taka ásakanir um óviðeigandi háttsemi presta og annarra starfsmanna kirkjunnar alvarlega,\" eins og Agnes M. Sigurðardóttir orðaði það nýverið.

Nú er hins vegar komið æi ljós að hún vissi af umkvörtununum vegna tilburða séra Ólafs árið 2014, en gerði ekkert í málinu. Séra Ólafur hefur verið sakaður um margvíslegt kynferðisofbeldi og ósiðlega tilburði í garð starfssystkina sinna og sóknarbarna og hefur úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar komist að þeirri niðurstöðu að í tveimur þeim tilvika sem kvartað hefur verið yfir opinberlega hafi klerkurinn gerst sekur um siðferðisbrot.

Hann er nú í leyfi frá störfum.