Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir gerði lotningu fyrir lífinu að umtalsefni í hátíðarmessu í Dómkirkjunni í morgun. Hún sagði að þó við mennirnir yrðum vissulega að lúta því sem lífið byði, réðum við samt býsna miklu um líf okkar og lífsstefnu.
Hún sagði að það væri sorglegt að horfa upp á það sem til óheilla horfði af mannanna völdum og vék biskup sérstaklega að því hvernig lifnaðarhættir mannkyns á síðustu öldum hefðu valdið röskun á náttúru jarðar: \"Okkur mönnum var ekki falin ábyrgð á sköpunarverkinu og við gerð að samverkamönnum skaparans sjálfs til að eyða og deyða. Okkur var falin ábyrgðin með nýtingarrétti en ekki eyðingarrétti.“
Biskup minnti á að kristin trú ynni með lífinu og fyrir lífið og að þjóðkirkjan hefði markað sér stefnu í fjölmörgum málum er hlúa að lífinu, m.a. á sviði umhverfismála.
Í ræðunni fjallaði biskup m.a um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Hún vísaði til sögulegs samkomulags á nýafstaðinni loftlagsráðstefnu í París sem ætti að tryggja að hlýnun jarðar yrði innan við 2°C. Hlýnandi veðurfar á jörðinni hefði víðtæk áhrif á vistkerfi jarðar og á náttúrfarslegar aðstæður á Íslandi. Biskup boðaði að þjóðkirkjan myndi leggja sitt af mörkum í þeim efnum og sagði meðal annars: \"Ákveðið hefur verið að endurheimta votlendi í Skálholti og til skoðunar er að slíkt eigi sér stað á fleiri kirkjujörðum. Endurheimt votlendis er mikilvægt skref í átt að breytingu á kolefnisbúskapnum. Mýrar hafa að geyma óhemju magn af kolefni og allar breytingar í kolefnisbúskap þessara vistkerfa eru því mikilvægar á hnattræna vísu. Hingað til höfum við einblínt á mengun frá farartækjum og slæma umgengni um náttúruna sem er vel. Það hefur komið mörgum á óvart að endurheimt votlendis hafi svo mikil áhrif sem raun ber vitni í átt til byggilegri heims.“
Biskup fjallaði um friðarboðskap jólanna og sagði m.a.: \"Okkur mönnum var ekki falin ábyrgð á sköpunarverkinu og við gerð að samverkamönnum skaparans sjálfs til að eyða og deyða heldur til að viðhalda og nýta. Okkur var falin ábyrgðin með nýtingarrétti en ekki eyðingarrétti. Friðurinn, jafnvægið verður að ríkja til að búandi sé áfram á jarðarkringlunni. Á þann frið erum við líka minnt í guðspjalli jólanna.“
Biskup fjallaði um Jesús og hvatti okkur til að hafa hann sem okkar fyrirmynd, treysta honum og feta í fótspor hans og sagði m.a.: \"Sá sem hlaut nafnið Jesús 8 daga gamall er leiðtogi okkar og fyrirmynd. Mænum á hann, treystum honum, lesum um hann í Biblíunni, fetum í sporin hans, förum eftir orðum hans. Kirkjunni hans er spáð endalokum. Þeir spádómar hafa heyrst áður en ekki ræst. Mennirnir spá og spekúlera en orð Guðs vors varir að eilífu segir í helgri bók.
Göngum óhrædd fram á veginn, þökkum fyrir allt það góða sem við búum við og biðjum um hjálp og styrk til bæta það sem ekki hefur staðist væntingar. Guð blessi land og þjóð og gefi farsæld og frið á nýju ári. Gleðilegt ár 2016 og þakkir fyrir það sem liðið er.“