Biskup segir veiruna geta kennt okkur hvernig taka eigi á loftslagsmálum

„Vís­inda­menn hafa fært okk­ur heim sann­inn um að los­un gróður­húsaloft­teg­unda vegna lífs­hátta margra jarðarbúa hef­ur valdið of­hlýn­un jarðar og stefn­ir í að hlut­ar heims­ins verði óbyggi­leg­ir,“ sagði Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands í páskaprédikun sinni sem hún flutti í dag.

Prédikunina flutti hún fyrir tómri Dómkirkju vegna samkomubannsins. „Þess­ir pásk­ar eru öðru­vísi en flest­ir aðrir. Fólk hóp­ast ekki sam­an til að renna sér á skíðum eða hitta ætt­ingja og vini. Nú hef­ur það tek­ist sem kannski eng­um hefði dottið í hug, að fyr­ir­mæl­um er hlýtt. Við stönd­um frammi fyr­ir ógn sem hef­ur tekið líf fjölda fólks, veikt aðra og lagt efna­hags­kerfi heims­ins á hliðina. Þegar líf­inu og lífs­grund­vell­in­um er ógnað þá gild­ir samstaðan,“ sagði hún.

Hún ræddi þá samband loftslagsmála og veirunnar og sagði að viðbrögð við faraldrinum sýndu að með samtakamætti og einbeittum vilja væri hægt að ná þeim markmiðum sem sett voru með Parísarsamkomulaginu.

„En svo hryggi­legt sem það er þá hef­ur veir­an skæða orðið til þess að stopp hef­ur verið sett á dag­legt líf jarðarbúa og á sama tíma ber­ast þær gleðilegu frétt­ir að íbú­ar í Punja­bhéraði, nyrst á Indlandi, sjái nú loks aft­ur til Himalaja­fjalla sem þeir hafa ekki séð síðustu þrjá­tíu árin vegna meng­un­ar. Að gervi­hnatta­rmynd­ir sýni að mikið hafi dregið úr loft­meng­un í Kína og að sík­in í Fen­eyj­um séu aft­ur orðin tær.

Við höf­um verið að stefna í þessa átt­ina, að minnka meng­un og auka loft­gæði, en það hef­ur gengið allt of hægt. En þess­ar frétt­ir sýna, svo ekki verður um villst, að með sam­taka­mætti og ein­beitt­um vilja er hægt að ná því mark­miði sem samþykkt var á lofts­lags­ráðstefn­unni í Par­ís árið 2015 að draga úr los­un gróður­húsaloft­teg­unda þannig að hnatt­ræn hlýn­un verði ekki meiri en tvær gráður.“