Biskup: mér leið eins og holdsveikri

\"Á tímabili leið manni eins og maður væri með holdsveiki eða smitandi sjúkdóm – varð óöruggur. Við þjónar kirkjunnar vissum ekki alveg okkar stöðu í samfélaginu. Við vissum okkar stöðu í kirkjunni og söfnuðinum en þar fyrir utan vissum við ekki alveg.“

Þetta segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands í viðtali í Fréttablaðinu í gær, aðspurð um þau umdeildu mál sem upp hafa komið innan Þjóðkirkjunnar undanfarin ár, þar á meðal biskupsmálið, en kirkjan hefur verið í vörn og tapað fjölmörgum sálum sínum á síðustu misserum.

Agnes segir að kynferðisbrotamál mál hafi haft áhrif á kirkjuna. Fagráð um meðferð kynferðisbrota hafi verið stofnað fyrst árið 1998, það hafi verið lærdómurinn af biskupsmálinu sem upp kom á tíunda áratug síðustu aldar. Kirkjan sé að reyna að læra af því sem hún gangi í gegnum og takast á við hlutina:

\"Ef eitthvað gerist í fortíðinni er erfitt að bregðast við því öðruvísi en að læra af því. Við getum ekki bakkað til baka. Þar af leiðandi þarf maður að bregðast við því með því að reyna að fyrirbyggja að svona gerist aftur.\"

Hún segir að boðskapurinn sem kirkjan hafi fram að færa sé frábær og vonandi nái kirkjan - einmitt í ljósi þess - vopnum sínum að nýju, en þetta hafi verið erfitt, vissulega: \"Þegar maður er óöruggur er auðveldara að berja á manni. Maður getur ekki varið sig. Ég bind vonir við það að við séum að komast upp úr þessu eins og þjóðin,\" segir Agnes í Fréttablaðsviðtalinu í dag.