Lögbanns-logi tjáir sig frjálslega

Palladómarnir falla í Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem bókaútgefandinn og rithöfundurinn Bjarni Harðarson og sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson setjast hjá Sigmundi Erni og rýna í helstu fréttamál líðandi stundar.

Báðir eiga þeir sér langa sögu í fjölmiðlum - og nokkuð viðburðaríka, eins og nýliðin atvik vitna um, en vinnustaður Loga Bergmanns til síðustu tólf ára, 365 miðlar, setti í síðustu viku lögbann á störf hans á miðlum Morgunblaðsins, þangað sem hann réð sig á dögunum.

Og það skortir ekki umræðuefnin í kosningavikunni; lögbannsmálið á Stundina, hræringarnar í pólitíkinni, endurnýjunin á Alþingi, ummæli biskups Íslands um stolin gögn og aukin glæpatíðni í íslensku samfélagi, en fréttir herma að tíu skipulögð glæpagengi hafi hreiðrað um sig hér á landi.

Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.