Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í gær bótaskyldu Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Íslands, gagnvart Páli Ágústi Ólafssyni, fyrrverandi héraðspresti í Vesturlandsprófastsdæmi. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu.
Embætti Páls var lagt niður í maí síðastliðnum og hann stefndi biskupi og þjóðkirkjunni vegna þeirrar ákvörðunar. Skömmu áður en embættið var lagt niður hafði gengið dómur um að biskup hefði ekki farið að lögum við skipan hans í embættið.
Páll krafðist bæði bóta og ógildingar en þeim kröfum var vísað frá dómi. Fallist var á varakröfu hans um viðurkenningu á bótaskyldu og því getur hann nú gert kröfu um bætur.
Í dómnum kemur fram að engin gögn hafi verið lögð fram um hagræðingu eða nauðsyn þess að leggja embættið niður og að rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi. Niðurlagning embættisins hafi verið stjórnvaldsákvörðun og biskup hefði því átt að fara að stjórnsýslulögum og meginreglum um vandaða stjórnsýsluhætti.