Konráð S. Guðjónsson, aðalhagfræðingur Stefnis, varpaði fram eftirfarandi spurningu á Twitter-síðu sinni í gær.
„Er Landspítalinn eini vinnustaður landsins þar sem COVID smit starfsfólks setja allt á hliðina eða er ekki sagt frá því annarsstaðar? Eða er langflestum orðið drull um veiruna (ekki svo) skæðu?“
Færsla hans skapaði miklar umræður og var fólk langt fram á nótt að keppast við að bregðast við spurningu Konráðs.
Nú hefur hann birt skilaboð sem hann virðist hafa fengið frá starfsmanni Landspítalans þar sem því er haldið fram að stór hluti starfsfólks sjúkrahússins sé hætt að hugsa um veiruna.
„Ætla ekki að Blanda mér í umræðuna en þetta er bara fake news hérna á LSH. Stór meirihluti starfsfólks sem er ekki í vinnu út af covid er einkennalaust. Meirihluti inniliggjandi með covid er að leggjast inn út af öðru og greinist óvænt við skimun í innlögn. Ástandið hérna myndi leysast samstundis ef einangrun einkennalaus starfsfólks yrði hætt. Allir sem vinna við þetta eru löngu hættir að hafa áhyggjur af þessari kvef pest.“ segir í skilaboðunum sem Konráð birtir.
Þá segir sá sem sendir skilaboðin að það sé í raun afmarkaður hópur stjórnenda spítalans sem geri allt í sínu valdi til að kalla eftir frekari takmörkunum.
„Það er afmarkaður hópur stjórnanda sem sinnir ekki sjúklingum sem keppist við að fara í fjölmiðla og óska eftir samfélags takmörkunum sem myndu engu skila og taka ekki í mál að leyfa einkennalausu starfsfólki að koma aftur í vinnu.“