„Það tók við ótrúlega mikil sorg. Heimilið okkar bugað af sorg. Síðan tók eiginlega ekkert við. Við áttum að fara í skólann og halda áfram lífinu eins og það var.“
Þetta sagði Birna Dröfn Jónasdóttir, starfsmaður Nýrrar dögunar sorgarmiðstöðvar, í samtali við í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í vikunni. Birna var aðeins 12 ára þegar faðir hennar, Jónas Björnsson drukknaði við strönd Benidorm á Spáni. Jónas, sem var tónlistarkennari og starfaði um árabil í hljómsveitum, var á Spáni til að leika þar með íslenskri hljómsveit. Hann var að synda við ströndina þegar hann lenti í útsogi og barst frá landi. Þegar björgunarmenn náðu til hans hófu þeir þegar lífgunartilraunir, sem báru ekki árangur. Jónas lét eftir sig eiginkonu og fjögur börn sem voru í harmi lostinn. Jónas var afar vel liðinn, geðprúður og alltaf boðinn og búinn til að gera allt fyrir alla. Hann átti marga vini og var aðeins um fertugt þegar harmleikurinn átti sér stað.
Birna tjáði sig einnig við RÚV um þennan erfiða tíma. Að jafnaði missa yfir hundrað börn foreldri sitt á hverju ári hér á landi. Alls misstu 1007 börn foreldri sitt yfir 10 ára tímabil, frá 2009–2018. Hagstofa Íslands birti í vikunni upplýsingar um börn sem misst hafa foreldri, og er þetta í fyrsta sinn sem Hagstofan birtir slíkar upplýsingar. Um þetta var fjallað á viðamiklu málþingi í vikunni sem fjallaði um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall foreldris undir yfirskriftinni „Hvað verður um mig?“ Birna sagði:
„Mér finnst bara skrýtið þegar ég hugsa til baka hversu lítið mætti mér þegar ég var 12 ára og missti pabba minn. Það var ekkert sem greip okkur systkinin. Mér finnst brýnast að það fari eitthvað ferli í gang sem gerir það að verkum að það sé ekki tilviljanakennt hvort börn fái aðstoð eða ekki ef þau missa foreldri sitt. Mér finnst að öll börn eigi að fá aðstoð þegar þau lenda í svona stóru áfalli.“
Hún fór yfir úrræðaleysið sem blasti við fjölskyldunni í kjölfarið, ekki síst vegna þess að móðir hennar glímdi við gífurlega sorg og gat því erfiðlega hugsað um sjálfa sig, Birnu eða þrjú systkini hennar. Því hafi hún þurft að fullorðnast fljótt, ekki komin á táningsaldur.
Í umfjöllun RÚV er greint frá því að í meðförum þingsins sé frumvarp um breytt og bætt verklag í aðstoð við börn sem hafa misst foreldri.
„Ég er eindreginn stuðningsmaður þess og þá er komið lagaumhverfi sem þarf til þess að styðja þessi börn og grípa þau þar sem þau eru stödd,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í samtali við RÚV.
Í samtali við Hringbraut sagði Birna að á þessum tíma hefði fjölskyldan þurft á aðstoð að halda. Að til væri ferli sem miðaði því að styrkja móður hennar og systkini.
„Við fórum bara í skólann og héldum lífinu áfram,“ sagði Birna og bætti við: „Það voru allir vandræðalegir og vissu ekki hvernig þeir áttu að láta. Ég talaði því ekki um pabba minn í mörg ár.“
Þá sagði Birna einnig: „Börn skynja áhyggjur foreldra sinna og við pössuðum okkur á að vera ekki meiri byrgði fyrir hana til dæmis. Henni leið nógu illa fyrir og maður vildi ekki stækka það og þá getur það orðið þess valdandi að allir fara í sína sorg, hver í sínu horni í stað þess að gera það saman.
Þá bætti Birna við að í dag væri staðan betri þegar dauðsföll eiga sér stað í fjölskyldum og betur gætt uppá þá sem syrgja. En betur má ef duga skal. Birna sagði:
„Dauðinn er ennþá tabú en hann er ekki eins mikið tabú eins og hann var fyrir 20 árum.“
Við minnum á Facebook-síðu Hringbrautar. Þar er að finna áhugaverðar fréttir og þá er ýmislegt spennandi framundan fyrir vini Hringbrautar. SMELLTU HÉR og vertu vinur okkar á Facebook.
Viðtalið við Birnu má sjá í heild sinni hér fyrir neðan: