Birkir jón leiðir framsókn í kópavogi

Birkir Jón Jónsson leiðir framboðslista Framsóknarflokksins í Kópavogi til bæjarstjórnarkosninga í vor. Listinn var einróma samþykktur á fundi fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í gærkvöldi.

Efstu fimm á lista Framsóknar eru:

1. Birkir Jón Jónsson  bæjarfulltrúi
2. Helga Hauksdóttir lögfræðingur
3. Baldur Þór Baldvinsson formaður FEBK
4. Kristín Hermannsdóttir nemi/tamningakona
5. Sverrir Kári Karlsson verkfræðingur