Birgja sig upp af lyfjum í aðdraganda brexit

Franska lyfjafyrirtækið Sanofi hefur aukið við birgðir sínar af ýmsum lyfjum til að vera við öllu búið náist ekki samningar milli Breta og Evrópusambandsins um úrgöngu þeirra úr sambandinu.
 
 

Samkvæmt heimildarmanni Wall Street Journal hefur fyrirtækið undirbúið sig undir þann möguleika að engir samningar náist milli Breta og ESB um úrgönguna í meira en ár. Þetta staðfesti talsmaður Sanofi.

Þetta er nýjasta dæmið um að stór evrópsk fyrirtæki séu í auknum mæli að undirbúa sig fyrir að úrganga Breta verði með þeim hætti að engir samningar náist við ESB um það hvernig henni verði háttað. Slíkt gæti leitt til mikilla truflana á innflutningi frá Bretlandi til Evrópu og öfugt.

Náist ekki samningar um úrgöngu Breta gæti flutningur á matvælum, lyfjum og samgöngur raskast verulega og sameiginlegar reglugerðir um ýmsa málaflokka fallið úr gildi.

Bretlandsdeild Sanofi hefur undanfarið hálft ár aukið mjög við birgðastöðu sína og fyrirtækið á nú 14 vikna birgðir af öllum lyfjum, nema þeim sem stöðugur skortur er á. Áður var Sanofi einungis með 4 vikna birgðir af lyfjum á Bretlandseyjum. Auk þess hafa birgðir af bóluefnum, sem fyrirtækið er stór framleiðandi á, verið auknar eftir fremsta megni.

Sanofi gæðaprófar framleiðslu sína í Bretlandi á meginlandi Evrópu. Slíkt verður ekki mögulegt náist ekki samningar um úrgöngu Breta. Fyrirtækið hefur greint frá því að hugsanlega verði hluta þeirra 1800 starfsmanna sem starfa fyrir það í Bretlandi sagt upp.

Lyfjafyrirtækið AstraZeneca tilkynnti í síðasta mánuði að það hefði aukið lyfjabirgðir sínar í Bretlandi vegna möguleikans á úrgöngu Breta án samnings við ESB.