Birgitta vill ekki launahækkunina

Launahækkanirnar sem kjararáð ákvað hafa valdið usla víða. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, er ekki sátt.

„Ég hef nú þegar hringt niður á Alþingi til að kanna hvort að ég geti afþakkað og hvernig þetta gengur fyrir sig og er að bíða eftir svörum,“ skrifar hún á Facebook.

Hún segir Pírata ekki haf neitt með ákvarðanir kjararáðs að gera, „...í það minnsta þá þekki ég engan í þessu ráði og við Píratar höfum aldrei tekið þátt í að skipa neinn í það. Ég hef gagnrýnt að í þetta ráð er fólk skipað á pólitískan hátt. Betra væri ef þetta væru fagaðilar sem hafa betri tengsl við vinnumarkaðinn. Það kom mér alveg jafn mikið á óvart að það hefði verið tekin ákvörðun um að hækka launin svona fáránlega mikið korteri eftir kosningar.“

„Þessi mikla aukning á launum ráðamanna er ekki til þess fallin að tryggja sátt á launamarkaði. Þá er þetta eins og blaut tuska í andlit þeirra sem eiga varla til peninga til að borða. Nokkrir vinir mínir hafa spurt mig hvort að ég hyggist þiggja þessa launahækkun. Ég hef nú þegar hringt niður á Alþingi til að kanna hvort að ég geti afþakkað og hvernig þetta gengur fyrir sig og er að bíða eftir svörum.“