Birgitta: við erum höfð að fíflum

\"Það er ófremdarástand núna, það er verið að hafa okkur að fíflum.\"

Þetta segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Píratam, sem vel gæti orðið næsti forsætisráðherra landsins svo vitnað sé til nýlegra ummæla Styrmis Gunnarssonar, fv. ritstjóra Moggans á Hringbraut, í nýrri færslu á eigin facebooksíðu.

Í færslunni fer Birgitta hörðum orðum um ríkisstjórnina. \"Ríkisstjórnin getur í raun og veru gert nákvæmlega það sem henni sýnist. Það er hægt að hægja á þingstörfum og þá hóta þeir í meirihlutanum að hætta við að hætta og minnihlutanum verður kennt um að stoppa t.d. nýju húsnæðislögin sem hafa bara verið í hægagangi því að stjórnarflokkarnir eru ekki samstíga. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að nýji forsætisráðherrann lofi kosningum eftir þetta þing, að ég geti ekki og má ekki treysta, því að hann ræður í raun svo litlu, þessi atburðarrás er hönnuð til að þjónka við Sjálfstæðisflokkinn og það verður allt reynt til að koma sér undan ábyrgð á því ástandi sem nú er í samfélaginu. Loforðin eru hol og tóm í ljósi sögunnar nema að þau verði staðfest af t.d. Forseta lýðveldisins þó mér sé óljúft að leita þangað, en hann hefur sett sjálfan sig kyrfilega í þessa atburðarrás og hlýtur því að bera einhverja ábyrgð á því limbói sem er núna í gangi,\" skrifar Birgitta um stöðuna sem uppi er.

Hún skrifar líka:

\"Bjarni [Benediktsson] segir á eina höndina að það eigi ekki að einakvæða LB en svo segir hann að það komi til greina að gera það ekki. Stór munur þar á. Sumir stjórnarliðar segja kosningar í haust og svo farið alla leið inn í enda október með dagsetningar. Það er ljóst að haustið er teygjanlegt hugtak all víða.

Þá er vert að hafa í huga að vegna þess að við erum ekki með nein stjórnarfarsleg verkfæri til að losa okkur við vanhæfar ríkisstjórnir þá dugar bara að standa þarna úti og gefa þessu fólki rauða spjaldið sem er auðvitað óþolandi í ljósi þess að því var lofað á síðasta kjörtímabili að breyta því en þeir sem nú fara við völd eyðilögðu það ferli að færa almenningi alvöru völd til aðhalds á ögurstund. ‪#‎nýjastjórnarskráin‬.\"