“Það er bara hægt að nota tvö orð yfir svona vinnubrögð: grímulaus spilling!”
Þessi orð skrifar BirgItta Jónsdóttir, einn áhrifamesti þingmaður samtímans í athugasemd á facebook við frétt Fréttablaðsins í dag um skúffufé.
Í frétt Fréttablaðsins sagði að Árni Johnsen, fyrrum þingmaður, hefði fengið styrk frá tveimur ráðherrum Framsóknarflokksins vegna kvikmyndaverkefnis sem hann vinnur að á Grænlandi um Scoresbysund. Einnig hafi Skotta ehf., fyrirtæki í eigu fyrrverandi varaþingmanns Framsóknarflokksins, fengið í þrígang styrk frá sömu ráðherrum vegna þriggja mismunandi verkefna.
“Ráðherrarnir, Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, hafa veitt Árna Johnsen og Skottu ehf., þessa styrki. Aðrir ráðherrar hafa ekki veitt styrki tilverkefnanna,” segir í frétt Fréttablaðsins.
“Geta þessir fyrrum þingmenn og varaþingmenn ekki sótt um styrki í opinbera sjóði fyrir sín verk eins og aðrir þurfa að gera, þar sem faglegt ferli er til staðar?”
Spyr Birgitta Jónsdóttir og hafa hundruð Íslendinga “lækað” orð hennar.