Það eru mjög sterk skilaboð um að þjóðin vilji breytingar og sé ósátt við núverandi kerfi að ríkisstjórnin mælist ítrekað með minna fylgi en Píratar einir. Þetta sagði Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata, í viðtali við Óðin Jónsson í morgunþætti RÚV í morgun.
Kom meðal annars fram hjá Birgittu að það væri ekki nóg að kjósa um mál og áherslur á 4ra ára fresti.
Birgitta sagði að Píratar væru einhuga um að ýmsar grunnstoðir í samélaginu s.s. heilbrigðismál ættu að vera á könnu ríkisins en ekki einkaaðila. Spurð frekar út í skýringar á hinu miklu fylgi Pírata samkvæmt skoðanakönnunum og það umhverfi sem stjórnmálamenn spretta að jafnaði úr, nefndi Birgitta að hún hefði sjálf fyrir þingmennsku þurft að standa í biðröð hjá Mæðrastyrksnefnd til að fá úthlutað og það í miðju góðæri. „Við þekkjum hvernig það er að búa í kerfinu,“ sagði Birgitta.
Umræða varð um fjölmiðla og veika stöðu þeirra hér á landi. Kom fram hjá þáttastjórnanda að markaðasvæðing þeirra hefði haft mikil áhrif, einkaaðilar væru mjög háðir sérhagsmunaöflum á sama tíma og Rúv berðist í bökkum. Í svari Birgittu kom m.a. fram að hennar persónulega skoðun væri að Rúv ætti að hverfa af auglýsingamarkaði. Einnig yrði að tryggja að almenningur í landinu hafi frjálsan aðgang að upplýsingum. Engin löggjöf sé til um uppljóstrara og ekki sé búið að upfæra upplýsingalög til að þau gagnist almannahagsmunum með bestum hætti.