Orku Energy málinu virðist ekki pólitískt lokið fyrir Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra ef marka má viðbrögð þingmanns Pírata við nýrri frétt.
Í frétt Stundarinnar í dag kemur fram að menntamálaráðuneytið hafi afhent gögn um Kínaferð ráðherrans í mars. Gögnin sýni að það var menntamálaráðuneytið sem ákvað að Orka Energy yrði fulltrúi íslenskra stjórnvalda í samstarfinu við kínversk yfirvöld á sviði jarðvarma.
„Ég veit ekki með ykkur en mér finnst þetta hljóti að flokkast undir spillingu og ákveðið siðleysi sem var mjög einkennandi fyrir Hrun,“ skrifar Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata í athugasemd við fréttina.
„Í samkomulaginu kemur fram að menntamálaráðuneytið hafi valið Orku Energy Ltd. og til að vera fulltrúa íslenskra stjórnvalda í samstarfinu við kínverska ríkið um jarðvarmarannsóknirnar. „Til að framkvæma það sem kemur fram í þessu samkomulagi hefur vísinda- og tækniráðuneyti Kína ákveðið að skipa SINOPEC Star Petroleum Co. Ltd, sem fulltrúa Kína, og menntamálaráðuneyti Íslands hefur að skipa Orkustofnun, opinbers orkufyrirtækis á Íslandi, ásamt Orku Energy Energy Ltd. til að vera fulltrúa Íslands.“ Þannig má segja að samkomulagið feli í sér að Orka Energy sé fulltrúi Íslands í jarðvarmasamstarfinu sem samkomulagið kveður á um. Hitt fyrirtækið, sem er fulltrúi kínverskra stjórnvalda, er stærsta orkufyrirtæki Kína, Sinopec, en það hefur verið í samstarfi við Orku Energy á liðnum árum. Með samkomulaginu má segja að Orka Energy sé orðinn hálf opinber fulltrúi íslenskra stjórnvalda í jarðvarmasamstarfinu. Orka Energy og Sinopec vinna að því að byggja upp hitaveitur í Kína,“ skrifar Birgitta.
Þingmaðurinn bætir við: „Af hverju er Menntamálaráðuneytið að vasast í þessu; fellur þetta ekki undir sérfræðisvið Iðnaðarráðuneytisins?“