Söngkonan Birgitta Haukdal er í opinskáu viðtali í nýjasta hefti tímaritsins MAN en hún gengur nú með annað barn sitt og deilir með lesendum reynslu sinni af meðgöngunni og erfiðleikunum sem henni fylgja.
Birgitta, sem prýðir forsíðu MAN, er mjög persónuleg í þessu viðtali og segir þar meðal annars frá sjálfsvígi bróður hennar sem fékk mjög á hana og alla fjölskyldu hennar, en sú erfiða reynsla fylgi fólki hvert sem það fari eftir að áfallið ríður yfir.
Hún ræðir líka árin í Barcelona en hún hafi ekki sagt vinum sínum frá því hvað hún var að starfa þar og útskýrir þá ákvörðun í viðtalinu, auk þess sem hún ræðir ævintýraárin í Írafári og barnasögurnar sem hún hefur verið að skrifa.
MAN er ritstýrt af Björku Eiðsdóttur, þáttastjórnenda og pistlahöfundi á Hringbraut.