„Eygló getur og má ræða það eins og hún vill hvort að rétt sé að skerða grundvallarmannréttindi en ég lofa að standa í vegi fyrir því að tjáningarfrelsi verði skert eða takmarkað. Nær væri að leggja áherslu á að auka fræðslu til að sporna við því sem Eygló óttast!“
Þetta segir Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata, í færslu á eigin fésbók þar sem hún tengir við frétt mbl.is þar sem haft er eftir Eygló Harðardóttur ráðherra að ræða þurfi takmarkanir tjáningarfrelsis.
Segir í frétt mbl.is að Eygló hafi lagt áhersli á hatursorðræðu í upphafsræðu á Jafnréttisþingi og sagt þar m.a.: „Við þurfum einnig að ræða hvenær getur talist nauðsynlegt að takmarka tjáningarfrelsið og við þurfum að ræða hvernig við getum komið böndum á hatursorðræðu á netinu þar sem gerendur eiga auðvelt með að komast hjá lögum og reglum, til dæmis með því að vista klámsíður í löndum með takmarkaða löggjöf og oftar en ekki fela þeir sig í skjóli nafnleysis.“ Sjá alla fréttina hér.
Í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut fyrir skömmu sagði Birgitta að þær breytingar sem orðið hefðu eftir hryðjuverkin í París hefðu þegar skotið lýðréttindum borgaranna mörg ár aftur í tímann.
Liggur nú fyrir að þingkonurnar tvær, Birgitta Pírati og Eygló ráðherra, muni taka rimmu um mikilvægi tjáningarfrelsis, hömlur gegn því og hverju skuli fórnað í þágu hvers.