Birgitta: gnarr leiðrétti hópnauðgun

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata og fyrrverandi nemandi í Héraðsskólanum að Núpi segir Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra fara yfir ákveðna línu þegar hann vænir skólafélaga sína um hópnauðgun sem hún segir að hafi ekki átt sér stað.

Jón fjallar um þessa meintu nauðgun í nýjustu æskuminningabók sinni, Útlaganum sem er framhald Indjánans og Sjóræningjans um bernsku- og unglingsár hans, en í nýjustu bókinni er hann að stálpast og er kominn vestur á Núp þar sem hann var samtíða Birgittu við nám í héraðsskólanum: \"Jón fer yfir ákveðna línu sem mér finnst að hann ætti að leiðrétta þar sem hann vænir skólafélaga sína um hópnauðgun sem aldrei átti sér stað,“ skrifar Birgitta á Facebook í tilefni af dómi Reynis Traustasonar um bókina í Stundinni í dag, en hún deilir gagnrýni blaðsins á síðu sinni.

Birgitta var um skeið kærasta Jóns á umræddu tímabili, árin 1981 til 1983.

Mikla athygli vakti í forsíðuviðtali Fréttablaðsins nýverið þar sem Jón hélt því fram að ein stúlka að nafni Lena hefði verið fórnarlamb hópnauðgunnar og einn nemandi, sem nefndur var Sprelli hafi orðið fyrir misnotkun kennara. Lýsingar Jóns, sem er núverandi framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365, á meintri hópnauðgun og barnaníði eins kennara hafa vakið mikla athygli og deilur, en komið hefur fram að fyrrverandi kennarar á Núpi eru mjög ósáttir við að ónafngreindur kennari hafi verð sakaður með þessum hætti um kynferðislega misnotkun.