Birgitta hætt í pírötum

Birgitta Jónsdóttir fyrrverandi þingmaður og Kapteinn Pírata er hætt í hreyfingunni og segist vera létt. Segja má að Birgitta hafi verið guðmóðir þessa flokks sem fyrir mörgum komst óvænt til valda á Alþingi. 

„Ég er hætt í hljómsveitinni (Píratar) sem ég stofnaði.  Það er léttir“, skrifar Birgitta á Facebook síðuna sína í dag

Enn fremur þetta: „Ég myndi ekki ráðleggja neinum með fullu viti að fara út í stjórnmál í þessum tíðaranda sem er á Íslandi. Þetta er eins og að fá holdsveiki og allt í einu er maður bara fair game. Alveg sama hvað maður gerir. Maður gerir aldrei neitt rétt. Maður gerir aldrei neitt vel. Maður er settur í einhverja dilka með fólki sem maður hefur andstyggð á. Eina leiðin út úr þessu er að skera alveg á þetta og fara. Það er bara þannig.“

Hún segir í umræðuþræði við færsluna ætla betur að útskýra mál sitt en segir þetta: „Ástæðurnar eru fjölmargar. Ætla að skrifa smá greinastúf til að útskýra með mínum orðum af hverju. Það hefur aðallega að gera með þá staðreynd að mér finnst flokkurinn ekki hafa tekist að viðhalda sínum grundvallar baráttumálum og hef ekki séð neinar raunverulegar áherslur á valdeflingu almennings\". Þar hafi Pírötum algerlega mistekist. 

„Ég lofa að útskýra þetta alltsaman miklu betur þegar ritstíflan lætur undan. Ég er ekki að hætta í neinu fússi. Ég er bara ekki lengur á sömu vegferð og flokkurinn og mér tókst ekki að finna leiðir til að fá tækifæri til að nýta reynslu mína innan flokksins og þá er bara lang heilbrigðast að hverfa frá. Ég óska öllum þeim sem eru ennþá að starfa innan flokksins alls hins besta\", stendur í öðrum þræði.

Einnig segist hún í enn öðru svari vilja losna úr viðjum þess að vera opinber persóna. 

„Og ég biðst afsökunar á því að hafa ekki barist harðar í þá veru þegar við vorum inni í gervivaldheimum á Austurvelli\", skrifar Birgitta.