Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, bregst af hörku við nafnlausum skrifum á eyjan.is undir yfirskriftinni \"Partýið búið\". Þar segir af fallandi fylgi Pírata skv. skoðanakönnunum. Er haldið fram að staðan sé ekki þannig að hægt sé að ganga út frá því að Píratar myndi næstu ríkisstjórn. Ein skýringin sé að kalt sé milli Birgittu og Helga Hrafns.
\"Orðið á götunni er að illdeilur innan Pírata að undanförnu blasi við öllum, en samt hafi mikið gerst á bak við tjöldin sem enginn viti um. Mjög andar köldu millum þingmannanna Helga Hrafns Gunnarssonar og Birgittu Jónsdóttur og er ástandið svo eldfimt innan flokksins, að formaður framkvæmdaráðs sagði af sér, sem var mikið áfall fyrir innra starfið, þar sem lögð er áhersla á umræður og beint lýðræði með atkvæðagreiðslum. Hafði Erna Ýr Öldudóttir lengi verið skotspónn Birgittu innan flokksins og fékk að lokum nóg.\"
Þá segir í greininni nafnlausu að Birgitta hafi talað niður til kjósenda þegar hún lýsti vonbrigðum með að Framsókn í miðju Panamalekahneyksli væri að ná vopnum sínum. Um það hefur Hringbraut fjallað.
Þessu svarar Birgitta í athugasemd við nafnlausu skrifin sem birtast á vefmiðli í eigu Björns Inga Hrafnssonar:
\"Við Helgi Hrafn vinnum mjög vel saman og það eru engir hnökrar á okkar samstarfi. Þessi grein er bara ömurlegt óskhyggjuslúður,\" segir Birgitta.
Hún telur skrifin róg sem beri keim af gamaldags áróðurstækni:
\"Ég þori alveg að fullyrða það að okkar litli þingflokkur er sá hamingjusamasti í þinghúsinu. Þá er ekki hægt annað en að hrósa öllu þessu fólki sem hefur lagt svo hart að sér í sínum frítíma að byggja inniviði flokksins sem er ekki auðvelt þegar um lítil fjárráð er að ræða, því það þýðir að ákvarðannaferli eru flóknari en ef hægt væri að setja öll þessi verk á hendur starfsmanns. Allir þeir sem vinna sem sjálfboðaliðar undir miklu álagi eiga miklar þakkir skildar, þar á meðal Erna Ýr sem lagði mjög mikið á sig og allir eru henni þakklátir fyrir það. Núningar á milli ólíkra skoðanna og hlutverka er bara hluti af lífinu, sér í lagi þegar slíkt er í þróun og við að reyna að vinna á annan hátt en hefur almennt tíðkast. Píratar eru að reyna að búa til óháð stjórnmálaafl sem er ekki með óhemju hagsmuni að baki sér sem hafa áhrif á mikilvægar ákvarðanatöku. Rógurinn sem hér má finna ber keim af áróðri gamla Íslands, þar sem einkennileg blanda óskhyggju nafnleysingja rennur saman við greinlegan kosningaskjálfta.\"