Guðrún Karls Helgudóttir prestur gerir athugasemd við að fjölmiðlar hafi veitt félagi Zúista mikla athygli á sama tíma og félög sem séu sannarlega lífs- og trúarskoðunarfélög fái synjun.
„Þetta félag fékk mikið rými í fjölmiðlum í gær til þess að útskýra fyrir fólki hvernig það gæti srkáð sig úr þjóðkirkjunni og í þetta félag. Á meðan alvöru trú- og lífsskoðunarfélög fá synjun fær félag, sem kallar sig trúfélag á fölskum forsendum, skráningu. Mér finnst þetta fullkomlega siðlaust og þætti nær að fólk gengi í það breyta löggjöfinni þannig að þau sem ekki greiða til trú- eða lífsskoðunarfélaga greiði ekki til ríkisins,“ skrifar presturinn Guðrún Kals Helgudóttir á facebook.
Mikil umræða hefur orðið síðasta sólarhring um félag Zúista en þar hefur fjöldi meðlima margfaldast á skömmum tíma og skiptir nú þúsundum. Í kvöld rennur út frestur til að breyta skráningu í félög.
„Zúistar styðja fullt og óskorað frelsi til trúariðkunar og trúleysis. Höfuðmarkmið Zúista er að hið opinbera felli úr gildi öll lög sem veita trú- og lífsskoðunarfélögum forréttindi eða fjárstyrki umfram önnur félög og að núverandi gagnagrunnur yfir trúfélagaaðild landsmanna verði lagður af,“ segir á heimasíðu félagsins.
Eftir því sem Hringbraut kemst næst er Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata í hópi þeirra sem hafa skráð sig í félagið síðasta sólarhring.
„Mér finnst þetta frábært framtak og mjög í anda stefnu Pírata,“ skrifar Birgitta á Pírataspjallið á facebook.
„Í núverandi kerfi birtast þessi forréttindi á margvíslegan hátt, meðal annars í formi fjárstyrkja frá ríkinu, afsláttar af opinberum gjöldum og að ungabörn séu sjálfkrafa skráð í þessi félög án vitneskju foreldra. Stjórn Zúista vill að sérstök lög um trú- og lífsskoðunarfélög verði einfaldlega felld úr gildi og að um þessi félög gildi sömu reglur og um önnur félagasamtök,“ bætir hún við.
„Stöðvum afskipti ríkisvalds af skipulagi trúfélaga,“ segir Birgitta Jónsdóttir en mikil brögð virðast að því að píratar séu í hópi þeirra sem þyrpast í félagið sem verið hefur í fréttum í dag vegna ýmissa álitamála í samfélaginu.