Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, situr nú í fangelsi eftir að hafa verið dreginn út úr sendiráði Ekvador í Lundúnum fyrir rúmum mánuði og handtekinn. Þann 1. maí var hann svo dæmdur í 50 vikna fangelsi fyrir að brjóta gegn skilyrðum og svíkjast undan tryggingu. Assange sætir nú einnig rannsókn í Svíþjóð vegna ásakana um kynferðisbrot í garð tveggja kvenna. Málið var fellt niður fyrir tveimur árum en var nýverið verið tekið upp að nýju.
„Það er mál í gangi sem verið er að taka upp aftur í Svíþjóð sem hefur farið alveg gríðarlega í taugarnar á mér, og ég skil ekki fólk eins og Kristinn Hrafnsson, að voga sér að segja að þetta sé ekki kynferðisbrot,“ sagði Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, um málið í Harmageddon á X-977 í morgun. Birgitta starfaði á árum áður fyrir WikiLeaks og þekkir Assange.
Níu ár eru frá því að fyrstu ásakanirnar á hendur Assange komu fram og sagðist Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks og talsmaður Assange, í viðtali hafa hvatt hann til þess að flýja land á sínum tíma. „Ég hef fylgst með þessu Svíþjóðarmáli frá upphafi, þessu meinta nauðgunarmáli sem er engin nauðgun,“ sagði Kristinn í Silfrinu á RÚV í apríl.
Birgitta sagði í Harmageddon að það væri bæði óábyrgt af Kristni að hvetja Assange til þess að flýja land og að fullyrða að ekki hafi verið um nauðgun að ræða. Hún sagðist persónulega hafa rætt við Assange og konurnar í Svíþjóð þegar ásakanirnar komu fram.
„Ég hef kynnt mér þetta mál mjög mikið í mjög mörg ár. Þetta eru ekki einu konurnar sem Assange hefur komið svona fram við. Önnur þeirra var sofandi og var búin að segja við hann ítrekað: „Ég vil ekki stunda óvarið kynlíf.“ Hún vaknar og hann er með fokking tittlinginn á sér inni í henni og hún spyr: „Hvað ertu með á þér?“ Og hann segir: „Þig.“ Hvað er það?“ sagði Birgitta.
Hún segir engan vafa leika á því að þarna sé um að ræða nauðgun. „Hér á Íslandi væri þetta líka skilgreint sem nauðgun. Ef þú vilt ekki ákveðna tegund af kynlífi, ef hann myndi stinga tittlingnum á sér inn í rassgatið á henni eða eitthvað. Það er bara nauðgun og ekkert annað,“ sagði hún.
Birgittu þykir þessar konur eiga skilið réttlæti eins og aðrir. „Ég vil að þessar konur fái sinn dag fyrir dómstólum. Ég get sagt að þetta, sem er skilgreint sem nauðgun, að konum sé stillt upp eins og þær séu einhverjar CIA-hórur, finnst mér fyrir neðan allar hellur.“