Birgitta biður jón gunnars afsökunar

Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata notar eigin fésbók til að biðja Jón Gunnarsson þingmann afsökunar á orðum sínum. Eigi að síður segist hún standa við að Jón hafi áreitt sig mjög.

Birgitta hefur færslu sína á að ítreka að hún hafi margoft beðið um sætaskipti á þingi í fyrra er Jón var sessunautur hennar. Það hafi verið alkunna hjá fyrirstjórn þingsins, enda hafi Jón stöðugt skotið ónotum að henai án tilefnis.

„Ég er með þykkan skráp og allt það, en ófyrirséð og stöðugt áreiti er þungbært þegar maður er fastur við hliðina á einhverjum í margra klukkutíma atkvæðagreiðslum. En mér er enginn vorkun, það hafa það margir miklu meira skítt en ég og þetta mál snýst ekki um mig heldur þær dylgjur sem þingmaðurinn viðhafði gagnvart Björk sem hann hefur ekki sýnt neina tilburði til að biðjast afsökunar á.“

Svo kemur kafli þar sem Birgitta beinir orðum sínum að Jóni:

„Ég er alveg tilbúin að biðja Jón Gunnarsson afsökunar ef ég hef móðgað hann eða sært. Hann væri maður með meiri ef hann bæði Björk Guðmundsdóttur opinberlega afsökunar. Jón Gunnarsson hér með bið ég þig innilegrar afsökunar á mínum hlut og ef orð mín hafa sært eða meitt þig. Ég ætla ekki með þetta inn í þingsal eins og þú gerðir í gær enda aðrir og mikilvægari hlutir sem þar þarf að ræða um.“