\"Nú erum við að takast á við eitt mikilvægasta mál kjörtímabilsins. Breytingar á stjórnarskrá. Það er mjög mikilvægt að við missum ekki sjónar á stóru myndinni,\" segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata í nýrri færslu á Pírataspjallinu. Þar biður hún ungan frjálslyndan mann sem áður aðhylltist Sjálfstæðisflokkinn afsökunar.
\"Sú misklíð sem hefur um langa hríð fengið að grassera innan flokksins er mein sem þarf að laga og fyrst aðrir félagar hafa ákveðið að opna á þá umræðu þá langar mig að koma eftirfarandi á framfæri.
Þó að mér finnist mjög leiðinlegt að taka Ólaf Evert út fyrir sviga, þá vill halda því til haga að ég hef aldrei nafngreint hann opinberlega, en geri það nú því ég vil biðja Ólaf Evert formlega og innilega afsökunar vegna ótta míns um að kosningakerfi okkar verði misnotað af þeim er aðhyllast frjálshyggju í anda frjálshyggjufélagsins eftir að hann skoraði á félaga á facebook síðu frjáshyggjufélagsins til að ganga í Pírata til að tryggja stefnu sem þeim hugnast í kosningakerfinu okkar. Það hefur komið fram að það hafi alls ekki verið ætlan hans heldur vildi hann bara að hvetja þá er aðhyllast frjálshyggju til að verða Píratar og auðvitað mega allir vera með í þessum flokki svo framarlega sem þeir aðhyllast grunnstefnu og þær stefnur sem Píratar hafa þegar lýst fyrir sem kosningabærum stefnumálum. Því vil ég segja við Ólaf, velkominn í Pírata,\" skrifar Birgitta.
Hún bætir við: \"Ég er mannleg og geri mörg mistök, en ég er alltaf tilbúin til að leiðrétta mistök mín og alltaf tilbúin að mæta gagnrýni. Ég er ekki endilega alltaf sammála öllum og finnst gott að við höfum ólíkar skoðanir um mikilvæg mál, það tryggir að við erum alltaf á jaðarbrúninni og erum alltaf vakandi.
Það er mér ljúft og skilt að biðja opinberlega afsökunar á því ef ég hef sært einhvern. Það var ekki ætlun mín en ég veit að ég get stundum verið hvatvís og þver.
Ég vil biðja ykkur um að bera klæði á vopnin ef einhver eru og leita að því sem sameinar okkar frekar en sundrar. Okkur hefur verið falið mikið traust og í slíku trausti felst mikil ábyrgð.\"
Einnig skrifar Birgitta að píratar í öðrum heimshornum hafi orðið fyrir sambærilegum áskorunum í meðbyr og hafi mistekist að finna lausnir. \"Þar var ákveðið að takast á um allt á milli himins og jarðar fyrir opnum tjöldum og það endaði með algeru hruni á trausti. Það er eitt að tala efnislega um ólík pólitísk sjónarmið, annað er að takast á um persónuleg ágreiningsmál. Það vill enginn sem er að koma í partý lenda í rifrildi gestgjafana. Þá fer fólk eitthvað annað og það væri hörmulegt að þeir sem finna von í okkar málflutningi um pólitískar lausnir missi þá von.\"
Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður sem átt hefur í deilu við Birgittu þakkar henni sérstaklega færsluna á Pírataspjallinu.