Birgitta baunar á forsætisráðherra

Birgitta Jónsdóttir, fyrrum Pírati, skrifar skoðanapistil í Stundinahvar hún segir að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hafi ekki tekist að breyta neinu, enda sé embætti hennar ekki eins valdamikið og ætla mætti, en hún líkir því við starf hópstjóra:

„Ég velti því stundum fyrir mér, hvort að embætti forseta lýðveldisins hefði ekki átt betur við núverandi forsætisráðherra en sú staða sem hún er í núna. Forsætisráðherranum hefur nefnilega ekki tekist að ná fram neinni stefnumótandi pólitískri stöðu síðan hún tók við því sem margir halda að sé valdamesta embætti landsins. Það er reyndar rosalegur misskilningur. Forsætisráðherra í samsteypuríkisstjórn er eiginlega bara hópstjóri sem þarf svo að sinna ýmsum hefðum sem embættið hefur gjarnan sinnt. Heilsa öðrum forsætisráðherrum á ráðstefnum valdamanna, helst ekki tala um erfiða hluti eða alvöru pólitík, því það heyrir undir annan ráðherra.“

Nánar á 

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/07/30/birgitta-baunar-forsaetisradherra-hefur-aldrei-verid-einhver-hardjaxl-sem-er-tilbuinn-ad-forna-ollu-fyrir-einhverja-hugsjon/