Birgitta ati þingmenn auri og lygum

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins réðist harkalega að þingmanni Pírata, Birgittu Jónsdóttur í dag og sakaði hana um að ata aðra þingmenn auri og lygum.

Voru það ummæli Birgittu í sjónvarpsfréttum nýverið um að sumir þingmenn fengju háa styrki frá útgerðinni sem kynnu að bjaga þeim sýn í makríldeilunni sem vöktu reiði þingmannsins. Í sömu þingræðu undir liðnum störf þingsins hafði Ásmundur sagt að viðskiptaþvinganir myndu engu skila.

Elsa Lára Arnardóttir, Framsókn, ræddi erfiðan vinnuanda þingsins og málþóf og sagðist vonast eftir betri tímum. Hún gat ekki í einu orði um að henni fyndist málflutningur samherja síns, Ásmundar í ríkisstjórninni, brjóta gegn þeirri ósk en hrósaði velferðarnefnd þingsins sem hún situr sjálf í fyrir að höndla mikið álag.

Uppfært kl. 15:55

Eftir að frétt Hringbrautar birtist í upprunalegri mynd að ofan kom Birgitta upp undir liðnum fundarstjórn forseta og bar af sér sakir á þingi vegna ummæla Ásmundar. Hún sagði m.a. að í rekstrareikningi 2013 mætti sjá hverjir hefðu fjármagnað prófkjör þingmanna Sjálfstæðisflokksins, „maður bítur ekki í höndina sem fæðir mann“. Ásmundur Friðriksson væri efstur á blaði með gríðarlega styrki frá útgerðinni.

Ásmundur sagði þá að hann væri vændur um að vera handbendi útgerða. Það væri hann ekki, þótt engin launung væri á að hann hefði e.t.v. fengið 100.000 krónur frá einu útgerðarfyrirtæki, hann myndi það ekki. Til skammar væri að þingmenn vændu aðra þingmenn um svíkja eigin þjóð.

Birgitta kom þá aftur upp og sagði alveg ljóst að fleiri en tvö útgerðarfyrirtæki hefðu stutt Ásmund. Það hefði augljóslega áhrif á dómgreind þingmanna ef þeir tækju við styrkjum frá fyrirtækjum og þess vegna væri hún alfarið gegn því að fyrirtæki styrktu þingmenn.

Ólína Þorvarðardóttir, Samfylkingu, kvaddi sér einnig hljóðs og sagði að orðbragð Ásmundar um lygar Birgittu hefði slegið sig. Upplýsingar hefðu komið fram og væru ekki nýjar af nálinni. Um mikla styrki útgerðar til þingmanna Sjálfstæðisflokksins væri að ræða. Sannleikanum væri hver sárreiðastur. Lágmark væri þegar menn sökuðu aðra þingmenn um lygar að þeir rökstyddu mál sitt.