Sérstök umræða fór fram um stöðu hjúkrunarheimila á landinu á Alþingi í dag. Flestir þingmenn voru sammála um að mikill vandi færi fyrir hendi í kerfinu samanber fréttir síðustu daga.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, sagði að allt of margir falli milli skips og bryggju fjárhagslega, kominn væri tími til að gera eitthvað strax í málum aldraðra, fátækra barna og fleiri hópa. Sjálf hefði hún átt afa sem dó á geðveikarhæli af því að hann fékk ekki inni á elliheimili þrátt fyrir langa bið. Manngerði þingmaðurinn umræðuna með hispurslausum hætti svo eftir var tekið.
Steingrímur J. Sigfússon, VG sagði að rekstrarvandi hjúkrunarheimila væri orðinn bráðavandi. Erfiður rekstur hjúkrunarheimila drægi athygli að misgengi sveitarfélaga og ríkis í rekstri. Sveitarfélög búi við miklar rekstrarlegar þrengingar og sitji uppi með að borga fyrir málaflokk sem sé á ábyrgð ríkisins. Má nefna gagnrýni bæjarstjórans á Akureyri í þeim efnum sem heldur fram að Akureyrarbær hafi síðari ár greitt hundruð milljóna í kostnað sem ríkinu beri að greiða. Mjög stórir árgangar séu að færast nær því að þurfa þjónustu vegna öldunar og þörf sé á skjótum viðbrögðum.
Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki, benti á að ekki hefði verið til heilsteypt plan hjá síðustu ríkisstjórn um þessi mál. Ábyrgðin væri allra. Gera yrði áætlun um hvernig ætti að byggja upp þessa þjónustu. Heilbrigðisráðherra væri að vinna slíka áætlun.