Birgir Þórarinsson svaraði því játandi hvort stemningin innan Miðflokksins minnti á vinnustaðaeinelti þegar hann var spurður út í málið í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
Birgir, sem yfirgaf Miðflokkinn eftir kosningar til að verða þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að allt frá Klausturmálinu hafi honum ekki liðið vel í Miðflokknum og það hafi verið unnið markvisst gegn því að hann kæmist áfram í flokknum.
Vandamálin hafi byrjað þegar hann gagnrýndi flokksfélaga sína fyrir þau orð sem þeir létu falla á Klaustur bar, þar á meðal um konur og fatlaða.
„Og þá var ég orðinn vandamálið í flokknum, tekinn fyrir á þingflokksfundum. Það voru haldnir sérstakir þingflokksfundir þar sem að ég er eina umræðuefnið og gagnrýndur mjög harkalega fyrir að gagnrýna þá,“ sagði Birgir. Þegar það kom að þriðja fundinum hótaði hann að fara og þá hafi verið hætt við fundinn.
Hann sagði að þess hafi verið krafist af honum að skrifa opinberlega afsökunarbeiðni fyrir að hafa gagnrýnt þá og að andrúmsloftið hafi verið erfitt eftir þetta í flokknum.
Birgir sagði að þegar úrslit kosninganna voru ljós sá hann að ef hann ætlaði að halda áfram yrði hann að vinna með tveim mönnum, öðrum sem hafði markvisst unnið gegn honum, Bergþóri Ólasyni, og svo hinum sem að sýndi honum algert fálæti, sem er formaður flokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Birgir sagði það alrangt að það hafi verið „eitthvað plot“ að fara í Sjálfstæðiflokksinn heldur hafi honum ekki verið líft í flokknum við þessar aðstæður.