Fjölmiðlastjarnan Birgir Olgeirsson birti áhrifamikla hugvekju um bólusetningar á Twitter.
Landsmenn keppast nú við að klára að bólusetja sig, velta margir vöngum yfir því hvaða bóluefni þeir fá við Covid-19 og hversu mikla vörn það veitir. Eru dæmi um að fólk vilji síður fá bóluefni sem talið er að veiti ekki jafn mikla vörn við Covid.
Birgir spyr því:
„Hvað hét bóluefnið sem þið fenguð gegn mislingum og hversu mikil var vörnin?“
Margir hafa deilt þessari spurningu á samskiptamiðlum.
Karen Kjartansdóttir, ráðgjafi hjá Athygli og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, veit hins vegar hvað bóluefnið hennar hét:
„Mitt hét M-M-RVAXPRO. Það þykir hafa virkað vel. Sú var ekki raunin hjá systur minni sem fædd er 1982. Hún fékk ekki nógu gott bóluefni og þurfti að fara aftur 2005,“ segir hún.
„Það sem hún fékk 2005 heitir Priorix. Þetta er samsett bóluefni við hettusótt, mislingum og rauðum hundum. Áhugavert að segja frá því að þrátt fyrir að hafa verið bólusett tvívegis þá hefur hún þegar tapað niður mótefni við rauðum hundum á því en það er sjaldgæft að það gerist.“
Sjálf hefði hún þó tekið hvaða bóluefni sem henni hefði verið boðið.