Birgir jónsson, forstjóri íslandspósts: sendibréfin í frjálsu falli og leikurinn snýst núna um pakkana

Birgir Jónsson, forstjóri Póstsins, stendur í ströngu þessa daga og hefur þurft að taka mjög erfiðar ákvarðanir frá því hann tók við starfinu fyrir um ári. Í síðustu viku sagði hann upp 30 manns í tengslum við minni áherslu fyrirtækisins á fjölpóst.

Birgir er í mjög fróðlegu viðtali hjá Jóni G. í kvöld og þar lýsir hann framtíðarsýn Póstsins á tímum þegar gömlu, góðu sendibréfin eru í frjálsu falli og hagurinn af því að nota ferð póstins í leiðinni um hverfin með fjölpóst er enginn og sem aftur hefur leitt af sér uppsagnir og verðhækkanir.

„Leikurinn snýst núna um pakkana,“ segir Pétur en aukin netverslun hefur fjölgað pakkasendingum Póstsins svo um munar. Enginn vafi er á því að áhersla Póstins á pakkana leikðir til aukinnar samkeppni á sviði hraðþjónustufyrirtækja með pakka.

Pósturinn missti einkaleyfið um síðustu áramót í bréfasendingum og því geta allir núna stofnað fyrirtæki og borið út bréf.

Fróðlegt og líflegt viðtal kl. 20:30 á Hringbraut í kvöld.