Birgir fær það óþvegið: „Íslandsmet í svikum við kjósendur.“

Á­huga­verðar um­ræður hafa skapast á sam­fé­lags­miðlum eftir að fréttir bárust í gær um þing­flokks­skipti Birgis Þórarins­sonar úr Mið­flokknum í Sjálf­stæðis­flokkinn. Hann segir Klausturs­málið hér um árið hafi haft á­hrif á flokks­skiptin. Fólk tekur mis­vel í á­kvörðun hans og segja um svik við kjós­endur að ræða.

Baldur Borg­þórs­son vara­borgar­full­trúi Mið­flokksins skrifar í færslu á Face­book „Nú er bleik brugðið kæri vinur. Finnst þér sómi að fram­komu Birgis og Ernu gagn­vart flokks­syst­kinum sínum sem þau nýttu til að koma sér inn á þing til þess eins að senda þeim þessar köldu kveðjur strax að loknum kosningum?

Og það áður en þing er sett? Slík fram­koma er engum til sóma og enn síður á­stæða til fagnaðar­láta. Kvislingar er það fyrsta sem kom upp í minn huga við þessar fréttir.“

Um­mælin dynja á færslu hans með alls kyns skoðunum þar á meðal Páll Valur Björns­son, fyrr­verandi þing­maður, „þetta Ís­lands­met í svikum við kjós­endur. Ef­laust miklu fleiri sem tjá sig annars staðar.“

Karl Garðars­son fyrr­verandi þinga­maður Fram­sóknar­flokksins skrifar einnig um málið í færslu á Face­book þar sem hann segir engan skort vera á pólitískum ó­heiðar­leika. Á­kvörðun Birgis Þórarins­sonar að yfir­gefa Mið­flokkinn og ganga til liðs við Sjálf­stæðis­flokkinn, hálfum mánuði eftir kosningar hljóti að jaðra við Ís­lands­met, skrifar hann.

„Það er svo sem ekkert nýtt að þing­menn skipti um flokk. Birgir var hins vegar greini­lega búinn að á­kveða þetta fyrir kosningar, nýtir sér Mið­flokkinn og kjós­endur hans til að komast inn á þing, en yfir­gefur skútuna strax og mark­miðinu er náð. Subbu­legra verður það vart. Sorg­legt að sjá vini mína í Sjálf­stæðis­flokknum fagna þessu á sam­fé­lags­miðlum. Við eigum aldrei að gleðjast yfir ó­heiðar­leika.“