Birg­ir ísleif­ur er látinn

\"\"Birg­ir Ísleif­ur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og seðlabanka­stjóri, lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans í Kópa­vogi í gær. Birg­ir fædd­ist í Reykja­vík 19. júlí 1936. Greint er frá andláti Birgis í Morgunblaðinu.

Þar segir enn fremur:

„Birg­ir tók alla tíð virk­an þátt í stjórn­mál­um. Hann var formaður Vöku, fé­lags lýðræðissinnaðra stúd­enta, frá 1956 til 1957 og formaður Stúd­entaráðs Há­skóla Íslands frá 1957 til 1958 og sat jafn­framt í há­skólaráði f.h. stúd­enta.

Hann var formaður Heimdall­ar frá 1959- 1962 og formaður SUS frá 1967 til 1969. Hann sat í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur frá 1962 til 1982 og var borg­ar­stjóri frá 1972 til 1978.

Hann var alþing­ismaður fyr­ir Reykja­vík­ur­kjör­dæmi frá 1979 til 1991 og gegndi embætti mennta­málaráðherra frá 1987 til 1988 í rík­is­stjórn Þor­steins Páls­son­ar.

Birg­ir var skipaður seðlabanka­stjóri 1991 og formaður banka­stjórn­ar 1994 og gegndi því starfi þar til hann fór á eft­ir­laun 2005.

Birg­ir var heiðraður með ýms­um hætti fyr­ir marg­vís­leg störf og hlaut hann m.a. stór­ridd­ara­kross ís­lensku fálka­orðunn­ar.

Birg­ir gift­ist Sonju Backman skrif­stofu­stjóra árið 1956 og eignuðust þau fjög­ur börn. Sonja lést 5. októ­ber sl.