Bindiskyldan hækkar vexti

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, er í viðtali i Þjóðbraut á Hringbraut í kvöld. Páll talar um verð fyrirtækja og skuldabréfa.

Eins mun Páll ræða um það sem færist æ meira í vöxt, en það er kaup fyrirtækja á eigin bréfum og hver hagræðing hlutahafa er af því. Slíkt hefur færst mjög í vöxt og kemur að hluta til í stað arðgreiðslna.

Bindiskylda hefur verið sett á peninga sem koma erlendis frá og er það gert tið hefta vaxtamunaviðskipti. Það hefur meðal annars þau áhrif að vextir á skuldabréfmarkaði hafa hækkað.