Bíll valt um klukkan 03.30 í nótt í Hörgárdal við bæinn Neðri-Vindheima.
Eftir því sem fram kemur hjá Rúv voru tveir í bílnum. Samkvæmt varðstjóra lögreglunnar á Akureyri sluppu þeir án teljandi meiðsla en annar slasaðist eitthvað í baki.
Bíllinn lenti í lausum snjó og missti bílstjórinn stjórn á honum.
Nokkuð hefur verið um að vegi hafi lokast norðan og austanlands vegna snjóa.