Bílslys: lifðu af 15 metra fall

Mikil mildi þykir að ekki fór verr þegar bifreið með tveimur erlendum ferðamönnum fór út af veginum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði í dag og féll 15 metra niður í fjöruna neðan við veginn.

Bíll­inn er gjör­ónýt­ur, að sögn lög­regl­unn­ar á Fá­skrúðsfirði, en rekja má slysið til aðstæðna þar sem flughált var á svæðinu eftir frostrigningu.Fólkið var á leið upp brekku þegar bif­reið þeirra, sem var á ónegldum lélegum vetrardekkjum, snér­ist og rann á 40 til 50 km hraða fram af þver­hníp­inu, fór nokkr­ar velt­ur og hafnaði niður í fjöru.

Fólkið var fyrst flutt til aðhlynningar á Fáskrúðsfirði, en þaðan á Norðfjörð þar sem það verður und­ir eft­ir­liti á sjúkra­hús­inu. Hvor­ugt þeirra er al­var­lega slasað en var eðli­lega mjög brugðið.