Alls hafa 1511 látist í umferðarslysum á Íslandi síðustu 100 árin. Þar af eru 1068 karlar og 443 konur. Árið 1977 var mannskæðasta umferðarslysaár sögunnar hér á landi en þá létust 37 í 33 slysum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í rannsókn Óla H. Þórðarsonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Umferðarráðs, á tímabilinu 25. ágúst 1915 til 24. ágúst 2015 og mbl.is vitnar til á síðum sínum í dag.
Árið 2014 létust fjórir í umferðinni en svo fáir hafa ekki látist í umferðinni á Íslandi síðan fyrir stríð en árið 1939 létust fjórir.
Flest banaslysin hafa orðið þegar keyrt er á akandi vegfarenda eða 471. 380 hafa látist við útafakstur eða veltu og 300 í árekstrum. Af þeim 1511 sem hafa látist í umferðinni eru 1414 Íslendingar.
Fyrsta banaslysið varð 25. ágúst 1915 er Guðmundur Ólafsson níu ára hljóp úr Veltusundi inn á Austurstræti og lenti þar á reiðhjóli. Hann féll með hjólreiðamanninum á götuna, fékk mikið höfuðhögg og lést klukkan 23 um kvöldið.