Bíll úr afgöngum: jói skoðar rottuna

Jói Bach lýkur upp hverjum skúrnum af öðrum í vinsælum bíladelluþáttum sínum, en ný þáttaröð hóf göngu sína á Hringbraut í síðustu viku. Í kvöld heldur heimsókn Jóa til Skúla K. Skúlasonar áfram en hann státar af forláta Chevrolet Camaro 1968. 

Í þættinum verður líka fjallað um þá sérstöku bílasmíði sem Rat-rot er, en hún gengur út á að smíða bíla upp úr mörgum bílategundum, en í þessum þætti er það Rottan sem verður skoðuð. Hér er á ferð bíll sem er í grunninn Chevrolet 1946 sem þeir félagar og eigendur Óðinn Grímsson, Auðunn Jónsson, Birgir Björgvinsson og Óskar Freyr Óðinsson eiga saman.

Þeir félagar hafa smíðað ótúlegan Rat-rot bíl sem samanstendur af yfir 20 bílategundum þegar upp er staðið og hugmyndaflugið fengið að njóta sín í botn við smíðina. Engum bílhlutum var hent á haugana heldur búinn til bíll úr afgöngum og um leið tekið til. Það mætti seigja að þarna sé \"grænn\" bíll á ferðinni þegar kemur að nýtingu, eða eins og Jói orðar það sjálfur: \"Magnað fyrirbæri sem vekur gríðalega athygli á rúntinum.\"

Skúrinn verður opnaður klukkan 20:30 í kvöld, en upptökustjórn þáttanna annast Steingrímur Jón Þórðarson.