Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja manna vegna vopnaðs ráns í útibúi Landsbankans í Borgartúni 33 í Reykjavík í dag.
Mennirnir komu að útibúinu á stolinni, hvítri sendibifreið, Ford Transit, með skráningarnúmerið VDZ 53. Bíllinn er fundinn í Barmahlíð í Reykjavík og sendi lesandi Hringbrautar myndina að ofan.
Fólk sem gæti gefið upplýsingar un mennina er beðið að hringja í 112 en ekki er ráðlegt að hafa afskipti af mönnunum heldur duga að láta lögreglu vita um ferðir þeirra.
Mennirnir kunna að vera vopnaðir. Talið er að þeir hafi notað skammbyssu og hníf er þeir ógnuðu bankafólkinu og komust burt með fé.